Nomenklatúra

Yfir Evrópu ríkir nú nomenklatúra, laus við allt vesen sem fylgir óþarfa afskiptum þegnanna af lýðræðinu. „Við skulum bara sjá um lýðræðið handa ykkur“ sögðu þeir og þvinguðu Lissabonsáttmálanum í gegn í nokkrum atrennum þó. Árangurinn sást í gær. Nomenklatúran skipaði leiðtogana sína úr eigin röðum eftir eitthverju ógegnsæju bítteringakerfi. Þegnarnir kusu þá ekki.

Vorum við ekki annars að brotlenda skútunni eftir tímabil forræðissjálftöku framkvæmdavaldsins, flokksstjórnmálamanna, embættismanna og peningavaldsins? Hvernig endaði það?

Eigum við nú að hlaupa til og fela Bretum, Hollendingum og þeim hinum forræðið yfir okkur af fúsum og frjálsum vilja? Hafa þeir sýnt svo einstaka lipurð og auðmýkt í samskiptum við okkur að við teljum að okkur sé best borgið undir þeirra forræði framvegis, að eilífu? Breta kannski sérstaklega, þegar við bætist reynslan úr Þorskastríðunum?

Er forræðishyggjan ekki fullreynd? Þarf að reyna Evrópuforræðið líka. Það kann annars að verða dýrkeypt því enginn gengur úr Evrópu sem þangað inn er kominn. Það er víst eins með Hells Angels. Og leynifélagsskapinn Frímúrararegluna, hvort sem hún er góð eða slæm. Hún er að minnsta kosti leynileg og það viljum við ekki í stjórn landsins lengur. Það mætti núverandi stjórn taka til athugunar.

Er ekki tími til kominn að snúa blaðinu við og taka upp opin vinnubrögð. Beint þegnlýðræði. Þjóðin kjósi um helstu mál og lítið Alþingi, með eflt þingræði sjái um smámálin og regluverkið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband